Jón Gnarr vinsælli en framsókn og frjálslyndir

Jón Gnarr
Jón Gnarr mbl.is/Rax

Besti flokkurinn fengi 12,7 prósenta fylgi og tvo borgarfulltrúa yrði kosið til borgarstjórnar Reykjavíkur í dag samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins sem birt er í blaðinu í dag.

Sjálfstæðisflokkur, Samfylking og Vinstri græn halda óbreyttum fjölda borgarfulltrúa samkvæmt niðurstöðu könnunarinnar. Bæði Framsóknarflokkur og Frjálslyndir og óháðir, sem eru með einn borgarfulltrúa hvor, missa fulltrúa sína.

Sjálfstæðisflokkurinn nýtur stuðnings 39,4 prósenta kjósenda og fengi sjö borgarfulltrúa yrðu þetta niðurstöður kosninga. Samfylkingin mælist með 26,3 prósenta fylgi og fjóra borgarfulltrúa. Vinstri græn fengju 14,2 prósenta fylgi og tvo borgarfulltrúa.

Framsóknarflokkurinn nýtur samkvæmt könnuninni stuðnings 5,6 prósenta, og 1,5 prósent styðja Frjálslynda flokkinn. Nýtt framboð óháðra, undir forystu Ólafs F. Magnússonar borgarfulltrúa, mælist með stuðning 0,4 prósenta Reykvíkinga. Ekkert þessara framboða kæmi manni að samkvæmt könnuninni.

Hér er hægt að lesa nánar um Bestaflokkinn

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert