Segir sig af lista Framsóknarflokksins

Guðrún Valdimarsdóttir hagfræðingur.
Guðrún Valdimarsdóttir hagfræðingur.

Guðrún Valdimarsdóttir, hagfræðingur, hefur sagt sig af lista Framsóknarflokksins í Reykjavík og úr öllum trúnaðarstörfum á vegum hans þ.m.t. formennsku í Félagi framsóknarkvenna í Reykjavík. Guðrún segir að stjórn kjördæmissambandsins í Reykjavík hafi óskað eftir því að hún víki sæti af framboðslistanum þar sem hún sat í 2. sæti.

Guðrún segir, að fundi með trúnaðarmönnum flokksins nýverið hafi hún vakið að  eigin frumkvæði, máls á þeirri staðreynd að fyrirtæki, sem sé að hluta til í eigu eiginmanns hennar, sé nefnt á nafn í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis. Þetta hafi hún gert í þeim tilgangi að fyrirbyggja misskilning í röðum Framsóknarmanna þar sem margir þeirra eru illa brenndir af spillingarumræðu fortíðar.
 
„Umrætt fyrirtæki heitir Miðbæjareignir og átti í viðskiptum við Icebank. Stjórnendur þess höfðu fulla trú á íslenska bankakerfinu í árslok 2007 og tóku tilboði Icebank um að vera aðili að endurhverfum viðskiptum. Miðbæjareignir töpuðu 160 milljónum króna, sem félagið lagði inn að handveði hjá Icebank sem skuldatryggingu vegna 8 milljarða  króna  láns frá Icebank til Glitnis. Á þeim tíma var skuldatrygging í slíkum viðskiptum 2%, enda var Glitnir með mjög hátt lánshæfismat hjá matsfyrirtækjum.  Samningar á borð við þennan voru algengir og gerðir með samþykki Fjármálaeftirlitsins. Miðbæjareignir eru nefndar á nafn í skýrslunni vegna þess að fyrirtækið veitti góðfúslega upplýsingar um viðskiptin til að auðvelda Rannsóknarnefndinni störf sín. Miðbæjareignir sæta ekki opinberri rannsókn.
 
Viðbrögð sumra flokksmanna komu mér vægast sagt á óvart. Ákveðinn hópur gekk strax í það verk að reyna að gera mína persónu tortryggilega í annarlegum tilgangi. Það er greinilegt að gamla eignarhaldsfélag flokksins í Reykjavík, sem beið lægri hlut í prófkjöri í nóvember sl., ætlar ekki að una sér hvíldar fyrr en það nær völdum á ný. Það vílar ekki fyrir sér að bera út gróusögur og vega að mannorði mínu.
 
Ég segi mig af lista flokksins og úr öllum trúnaðarstörfum á vegum hans þ.m.t. formennsku í Félagi framsóknarkvenna í Reykjavík. Ég óska Einari Skúlasyni oddvita alls hins besta í komandi kosningum," segir Guðrún í yfirlýsingunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert