Landsbyggðarflokkurinn stofnaður í dag

Í Barðastrandasýslu. Liðsmenn Landsbyggðarflokksins koma víðsvegar af landinu en í …
Í Barðastrandasýslu. Liðsmenn Landsbyggðarflokksins koma víðsvegar af landinu en í stjórn sitja menn frá Vestfjörðum og Austfjörðum. mbl.is/Sigurður Bogi

Nýr stjórnmálaflokkur, Landsbyggðarflokkurinn var stofnaður formlega í dag með stofnfundi sem haldinn var á netinu. Þátttakendur voru víðsvegar á landinu og samþykktu þeir að kjósa bráðabirgðastjórn fram að framhaldsstofnfundi sem haldinn verður innan tveggja vikna.

Í fréttatilkynningu frá Landsbyggðarflokknum segir að hlutverk bráðabirgðastjórnarinnar verði að vinna frekar að samþykktum og stjórnmálayfirlýsingum flokksins og framboði hans til alþingiskosninga á komandi vori.

Þau sem kosin voru í bráðabirgðastjórn eru:

Magnús Hávarðarson Ísafirði
Gunnar Smári Helgason Siglufirði
Haukur Már Sigurðarson Patreksfirði
Árni Björnsson Egilsstöðum
Ylfa Mist Helgadóttir Bolungarvík

Á fundinum var jafnframt samþykkt áskorun til stjórnvalda um samgöngumál, sem er svo hljóðandi:

„Landsbyggðarflokkurinn skorar á Alþingi Íslendinga að setja strax lög um flýtiframkvæmdir á þeim vegum sem hafa orðið útundan í samgönguframkvæmdum undanfarna áratugi og eru svo illa úr garði gerðir að þeir þola ekki eðlilega vöruflutninga.

Það felst mikil skerðing á lífsgæðum íbúanna í að búa við slíkt ástand og mikil samkeppnishindrun fyrir fyrirtæki sem háð eru flutningi um slíka vegi.

Nú þegar stofnfundur Landsbyggðarflokksins stendur yfir er heill landsfjórðungur, Vestfirðir, lokaður eðlilegum vöruflutningum. Einnig eru víðtækar þungatakmarkanir á Snæfellsnesi, hluta af Norðurlandi og á Austurlandi. Engar þungatakmarkanir eru í grennd við Reykjavík.
Ástand þetta er ekki til komið vegna náttúrhamfara eða verulega óvenjulegra aðstæðna.

Alþingi hefur látið hjá líða að veita fé til Vegagerðarinnar til þess að hún geti sinnt eðlilegu hlutverki sínu, sem er að samfélagið gangi án verulegra samgönguhindrana. Landsbyggðarflokkurinn krefst úrbóta strax.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert