Frumvörp um Bakka lögfest

Þingmenn hafa samþykkt frumvörp um uppbyggingu kísilvers á Bakka.
Þingmenn hafa samþykkt frumvörp um uppbyggingu kísilvers á Bakka. mbl.is/Styrmir Kári

Frumvarp um kísilver á Bakka var samþykkt á Alþingi nú fyrir skömmu með 32 atkvæðum gegn fimm atkvæðum. Átta þingmenn greiddu ekki atkvæði. Auk þess var frumvarp um uppbyggingu innviða vegna atvinnustarfsemi í landi Bakka samþykkt með 33 atkvæðum gegn fimm atkvæðum. Níu þingmenn greiddu ekki atkvæði.

Með þessu er búið að liðka fyrir því að hægt verði að byggja upp orkufrekan iðnað í Þingeyjasýslum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert