Átján hafa fengið listabókstaf

Horfur eru á að kjörseðlar í kosningunum 27. apríl verði …
Horfur eru á að kjörseðlar í kosningunum 27. apríl verði stórir.

Átján stjórnmálasamtök hafa fengið úthlutaðan listabókstaf vegna alþingiskosninganna sem fram fara 27. apríl. Ekki er þó víst að framboðin verði svona mörg, en frestur til að skila framboðum rennur út á hádegi á morgun.

Frestur stjórnmálasamtaka til að tilkynna innanríkisráðuneytinu ósk um listabókstaf rann út 9. apríl. Ráðuneytið birti í dag skrá yfir listabókstafi stjórnmálasamtaka sem buðu fram lista við síðustu almennar alþingiskosningar ásamt bókstöfum þeirra stjórnmálasamtaka sem tilkynntu ráðuneytinu að þau hygðust bjóða fram lista við komandi alþingiskosningar. Þetta eru:

A-listi:    Björt framtíð
B-listi:    Framsóknarflokkur
C-listi:    Samstaða – flokkur lýðræðis og velferðar
D-listi:    Sjálfstæðisflokkur
F-listi:    Frjálslyndi flokkurinn
G-listi:    Hægri grænir, flokkur fólksins
H-listi:    Húmanistaflokkurinn
I-listi:     Flokkur heimilanna (hét áður Lýðveldisflokkurinn)
J-listi:     Regnboginn, fyrir sjálfstæði Íslands og sjálfbæra þróun
K-listi:    Sturla Jónsson, K-listi (hét áður Framfaraflokkurinn)
L-listi:     Lýðræðisvaktin
M-listi:    Landsbyggðarflokkurinn
P-listi     Lýðræðishreyfingin
R-listi:    Alþýðufylkingin
S-listi:    Samfylkingin – jafnaðarmannaflokkur Íslands (hét áður Samfylkingin)
T-listi:     Dögun – stjórnmálasamtök um réttlæti, sanngirni og lýðræði (hét áður Borgarahreyfingin – Þjóðin á þing. Hafði þá listabókstafinn O)
V-listi:     Vinstrihreyfingin – grænt framboð
Þ-listi:     Píratar

Þó að stjórnmálasamtök hafi fengið úthlutaðan listabókstaf er það ekki formleg tilkynning um framboð sem berast á hlutaðeigandi yfirkjörstjórn fyrir klukkan 12 á hádegi 12. apríl. Landskjörstjórn auglýsir framboðslista eigi síðar en 17. apríl, eða tíu dögum fyrir kjördag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert