Framsókn með 29% í nýrri könnun

Hálfur mánuður eru í alþingiskosningar.
Hálfur mánuður eru í alþingiskosningar. mbl.is/Brynjar Gauti

Framsóknarflokkurinn fær 29% atkvæða í nýrri skoðanakönnun Gallup sem RÚV birti í kvöld. Sjálfstæðisflokkurinn fær 22% atkvæða og Samfylkingin 12%. Helstu breytingar frá síðustu könnun Gallup er að fylgi Samfylkingarinnar dalar og hefur ekki mælst minna í tæplega 15 ár.

Framsóknarflokkurinn er enn á uppleið, samkvæmt könnuninni, mælist nú með rúm 29%, ríflega prósentustigi meira en síðast. Hann fengi 22 þingmenn samkvæmt könnuninni. Sjálfstæðisflokkurinn dalar lítillega frá síðustu könnun, mælist með tæp 22% og 16 þingmenn.

Samfylkingin fær rúm 12% og tapar næstum þremur prósentustigum frá síðustu könnun og fær 9 þingmenn. Björt framtíð dalar einnig, fær rúm 10% og 7 þingmenn. Vinstri græn eru einnig á niðurleið, eru nú með 7,3 prósent og fimm þingmenn, en Píratar auka fylgi sitt um næstum tvö og hálft prósentustig, fá tæp 7% og fjóra þingmenn. Aðrir ná ekki inn manni en næst því er Lýðræðisvaktin, með 3,8%. 

Könnunin var gerð dagana 2.-10. apríl. Ríflega 81% þeirra sem svöruðu tóku afstöðu. 9,5% ætla ekki að kjósa eða skila auðu, tæp 6% tóku ekki afstöðu og 3% neituðu að svara.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert