Sjálfstæðisflokkur með mest fylgi

Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins.
Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Ómar Óskarsson

Rétt tæplega 28% kjósenda ætla að velja Sjálfstæðisflokkinn samkvæmt nýrri skoðanakönnun Capacent Gallup. Flokkurinn fengi rúmlega 3% meira fylgi en Framsóknarflokkurinn.

Samkvæmt könnuninni segjast 27,9% ætla að kjósa Sjálfstæðisflokkinn, 24,7% Framsóknarflokkinn, 14,6% Samfylkinguna, 10% Vinstri græn, 6,6% Bjarta framtíð, 6,1% Pírata, 2,8% Lýðræðisvaktina, 2,6% Hægri græna, jafn margir hyggjast kjósa Dögun og 1,3% Flokk heimilanna.

Önnur framboð mælast með innan við 1% fylgi.  

Greint var frá könnuninni í kvöldfréttum RÚV.

Sjálfstæðisflokkurinn er sterkastur í Suðvesturkjördæmi með 33% fylgi miðað við könnun Capacents. Fylgi flokksins er næstmest í Suðurkjördæmi. Framsóknarflokkurinn hefur hlutfallslega flesta stuðningsmenn í Suðurkjördæmi, en 35% kjósenda þar ætla að kjósa flokkinn.

Þá ætla 34% kjósenda í bæði norðvestur- og norðausturkjördæmi að kjósa Framsóknarflokkinn.

Samfylkingin er sterkust á suðvesturhorninu með 16-17% fylgi. Vinstri græn eru sterkust í Reykjavíkurkjördæmi norður með 17% fylgi. Mesta fylgi Bjartrar framtíðar er í Reykjavík og Píratar sækja fylgi sitt mest í  Suðurkjördæmi og Reykjavík norður. 

Könnunin var gerð dagana 18. til 25. apríl. Svarhlutfall var 60%.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert