„Því miður í takt við það sem ég óttaðist“

Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri í Kópavogi.
Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri í Kópavogi. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

„Þessar breytingar á lánshæfismatinu eru mér mikil vonbrigði en því miður í takt við það sem ég óttaðist,“ segir Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs um lækkun á lánshæfismati bæjarins.

Kópavogsbær hefur nú birt í Kauphöll Íslands nýtt lánshæfismat sem unnið er af lánshæfismatsfyrirtækinu Reitun. Horfum lánshæfismats Kópavogs er breytt úr stöðugum í neikvæðar vegna nýlegrar samþykktar bæjarstjórnar um kaup á 30 til 40 íbúðum og byggingu tveggja fjölbýlishúsa. Í matinu segir að verði þetta að veruleika muni lánshæfi Kópavogs versna vegna aukinnar skuldsetningar í viðkvæmri stöðu, óstöðugleika og minni fyrirsjáanleika.

„Þessar breytingar á lánshæfismatinu eru mér mikil vonbrigði en því miður í takt við það sem ég óttaðist,“ segir Ármann í yfirlýsingu. „Ég hef í starfi mínu sem bæjarstjóri Kópavogs lagt mikla áherslu á styrka og stöðuga fjármálastjórn og í júlí á síðasta ári hækkaði Reitun lánshæfismat Kópavogs úr B í B+ með stöðugum horfum. Nú hefur þeim horfum hins vegar verið breytt í neikvæðar vegna ákvörðunar bæjarstjórnar Kópavogs. 

Samþykkt bæjarstjórnar er því farin að skaða bæjarsjóð. Kópavogsbær þarf á næstu vikum að leita á markað vegna endurfjármögnunar á árinu 2014. Lánshæfismatið og neikvæðar horfur kunna því miður að leiða til verri lánskjara Kópavogsbæjar.“

Í rökstuðningi Reitunar segir að ákvarðanir um að víkja skyndilega og án undirbúnings frá fjárhagsáætlunum gefi vísbendingar um að fjármálastjórn sveitarfélagsins sé ekki jafn stöðug og áður virtist. „Sjálfur var ég andvígur umræddri tillögu og benti á að kaup á 100 íbúðum, miðað við samtals 60 íbúðir í fjölbýlishúsunum, myndu kosta um 3 milljarða króna. Það myndi auka skuldir og þar með skuldahlutfall bæjarins um 7 til 9%,“ segir Ármann í yfirlýsingu sinni.

„Ég mun áfram leggja áherslu á ábyrga fjármálastjórn og vonast til að bæjarstjórn Kópavogs beri gæfu til að fylgja áfram eftir þeim markmiðum sem unnið hefur verið eftir undanfarin fimm ár.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert