Meirihlutinn fallinn í Reykjanesbæ

Frá Reykjanesbær.
Frá Reykjanesbær. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Meirihluti Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn Reykjanesbæjar er fallinn samkvæmt nýrri könnun Félagsvísindastofnunar fyrir Morgunblaðið.

Flokkurinn tapar miklu fylgi, fær 37,1% atkvæða og fjóra bæjarfulltrúa, en fékk 52,8% atkvæða í kosningunum árið 2010 og sjö menn kjörna í ellefu manna bæjarstjórn.

„Ég tek þessum tölum mjög alvarlega. Þetta er mæling á stöðunni eins og hún er í dag og ekki ástæða til að gera lítið úr því,“ sagði Árni Sigfússon bæjarstjóri. „Það er mikilvægt að fá mælingu svona í upphafi kosningabaráttunnar. Það auðveldar mönnum að átta sig á því hvar þeir geta tekið á.“

Aðrir flokkar í bæjarstjórn tapa einnig fylgi, að því er fram kemur í fréttaskýringu um skoðanamælinguna í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert