Framsókn í NA felldi flokksþingstillögu

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson á síðasta flokksþingi Framsóknarflokksins. Óvíst er hvenær …
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson á síðasta flokksþingi Framsóknarflokksins. Óvíst er hvenær það næsta verður haldið. mbl.is/Styrmir Kári

Kjördæmisþing Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi felldi í dag tillögu um að fara fram á að flokksþing verði haldið hjá flokknum í haust. Frá þessu greinir á vef Ríkisútvarpsins en kjördæmisráð flokksins í Suður- og Norðvesturkjördæmi samþykktu tillöguna með miklum meirihluta atkvæða. 

Á vef RÚV greinir frá því að tillagan hafi verið felld með litlum mun atkvæða en ólíkar skoðanir eru á meðal flokksmanna um hvort endurnýja þurfi forystu flokksins sem er gert með atkvæðagreiðslu á flokksþingi. 

Miðstjórnarfundur Framsóknarflokksins getur boðað til flokksþings en kjördæmisþingin geta flýtt fyrir ferlinu að því er fram kom í frétt RÚV í morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert