Harma niðurstöðuna í Kraganum

Frambjóðendur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi.
Frambjóðendur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi. mbl.is/Árni Sæberg

Lokatölur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi liggja nú fyrir. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármálaráðherra, leiðir listann, en hann hlaut örugga kosninga í efsta sætið, eða 2.479 atkvæði af 2.699. 

Listinn er að öðru leyti óbreyttur. Jón Gunnarsson alþingismaður er í öðru sæti og Óli Björn Kárason ritstjóri í því þriðja. 

Vilhjálmur Bjarnason alþingismaður er fjórði, Bryndís Haraldsdóttir, formaður bæjarráðs Mosfellsbæjar, er fimmta og Karen Elísabet Halldórsdóttir, bæjarfulltrúi og varaþingmaður, er sjötta.

Greidd atkvæði voru 3.154 en þar af voru 118 seðlar auðir og ógildir. Talin atkvæði voru því 3.036.

Framkvæmdastjórn Landssambands sjálfstæðiskvenna hefur sent frá sér tilkynningu, þar sem niðurstaða prófkjörsins er hörmuð.

„Sú staðreynd að fjórir karlar skipi efstu fjögur sæti listans er að mati framkvæmdastjórnar LS óviðunandi og endurspeglar á engan hátt þá breidd sem Sjálfstæðisflokkurinn býr yfir. Til að tefla fram sigurstranglegum lista verður kynjahlutfall að vera jafnara en nú er. Konum hefur með þessari niðurstöðu verið hafnað í Suðvesturkjördæmi. Það er ekki einungis slæmt fyrir konur, heldur fyrir flokkinn allan og kemur til með koma niður á fylgi flokksins í komandi kosningum.

Prófkjörsreglur Sjálfstæðisflokksins eru skýrar. Þar er kveðið á um að kosning er ekki bindandi nema kjörsókn sé 50%. Svo er alls ekki nú.

Framkvæmdastjórnin skorar á forystu flokksins, þau Bjarna Benediktsson, Ólöfu Nordal og Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, að beita sér fyrir breytingu á listanum áður en hann verður samþykkur, um leið og við fögnum fyrstu viðbrögðum formanns flokksins við niðurstöðunni sem gefa fyrirheit um að forystan muni bregðast við. Þá skorar LS einnig á kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi að samþykkja listann ekki óbreyttan,“ segir í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert