Hvað skilur að í stóru málunum?

Hvað er það sem skilur flokkana að í mikilvægum málefnum? Það getur verið erfitt að finna mun á stefnumálum stjórnmálaflokkanna í stórum málaflokkum. mbl.is skoðaði því vefi sjö stærstu flokkanna og tíndi til atriði í þeirra stefnumálum og ályktunum sem greina þá að.

Við byrjum á utanríkismálunum.

Í myndskeiðinu sem fylgir fréttinni eru tínd til þrjú atriði hjá hverjum stjórnmálaflokki í málaflokknum. Reynt var að halda tryggð við orðalagið sem var á heimasíðum flokkanna. Við miðuðum við að skoða flokkana sem hafa mælst með meira en 5% fylgi í könnunum og teljast líklegir til að ná fólki inn á þing í kosningunum sem fram fara 29. október.

Fram að kosningum verða svo birt fleiri myndskeið þar sem farið verður yfir önnur málefni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert