Gott hljóð í fundarmönnum

Það virtist létt yfir fólki á fundinum í dag.
Það virtist létt yfir fólki á fundinum í dag. mbl.is/Ófeigur

Fundi flokkanna fimm um grund­völl fyr­ir rík­is­stjórn­ar­sam­starfi lauk um hálffjögurleytið í dag. Katrín Jakobsdóttir, formaður VG, sagði að ákvörðun um formlegar viðræður komi í ljós eftir næsta fund sem á sér stað á morgun en hún mun þurfa að gera forseta grein fyrir gangi mála eftir helgi.

Frétt mbl.is: Funda um samstarfsgrundvöll

Katrín boðaði til fund­ar­ klukkan eitt í dag með full­trú­um Bjartr­ar framtíðar, Pírata, Sam­fylk­ing­ar og Viðreisn­ar. Hún fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá Guðna Th. Jó­hann­es­syni for­seta á miðviku­dag eft­ir að Bjarni Bene­dikts­son, formaður Sjálf­stæðis­flokks­ins, sleit viðræðum við Bjarta framtíð og Viðreisn á þriðju­dag.

Ákvörðun um formlegar viðræður verður tekin á morgun.
Ákvörðun um formlegar viðræður verður tekin á morgun. mbl.is/Ófeigur

„Við erum búin að sitja hér og fara yfir ýmis stórmál; til dæmis heilbrigðismál, skattamál, sjávarútvegsmál og fleira. Það sem gerist næst er að við förum til okkar baklands og síðan ætla formenn og fulltrúar flokkanna að hittast á morgun,“ sagði Katrín Jakobsdóttir eftir fundinn. „Á morgun mun skýrast hvort af þessu verður eða ekki.“

Smári McCarthy sem er í forsvari fyrir Pírata í viðræðunum ásamt Birgittu Jónsdóttur og Einari Brynjólfssyni hljómaði bjartsýnn á framhaldið. 

„Þetta var rosalega jákvæður fundur. Auðvitað voru atriði sem einhverjir voru ekki algjörlega sammála um en það var mín tilfinning að við gætum komist auðveldlega gegnum þau mál. Það var smá mismunur á nálgunum fólks, til dæmis í skattamálum og þess háttar, en allt þess eðlis að við hljótum að geta komist að niðurstöðu.

Fulltrúar Vinstri grænna.
Fulltrúar Vinstri grænna. mbl.is/Ófeigur

Ekkert óyfirstíganlegt

Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar, taldi að fundi loknum að ekkert væri því til fyrirstöðu að flokkarnir haldi áfram að ræða sín á milli miðað við stöðu mála eftir fundinn. 

„Fólk fór yfir helstu mál og flokkarnir fóru yfir sína afstöðu. Þetta voru ekki samningaviðræður í þeim skilningi heldur var áréttað hvar flokkarnir stæðu. Eðli málsins samkvæmt er engin niðurstaða,“ sagði Benedikt. „Það virtist ekki óyfirstíganlegt á þessum fundi. Auðvitað er munur og það var vitað fyrir fram en andinn var mjög góður. Ég sá ekkert í dag sem mælir á móti því að við getum haldið áfram að tala saman.“

Fulltrúar Viðreisnar.
Fulltrúar Viðreisnar. mbl.is/Ófeigur

Óttarr Proppé, formaður Bjartar framtíðar, var ásamt Benedikt hluti af stjórnarmyndunarviðræðunum við Sjálfstæðisflokkinn áður en Bjarni Benediktsson formaður sleit þeim á þriðjudaginn.

„Þetta var góður fundur, við fórum vítt og breitt sem gerir mann bjartsýnan á framtíðina.Við vorum að fara í ákveðna hringi og velta fyrir okkur til dæmis heilbrigðismálunum og það var samstaða um að þar þyrfti að gera betur en erum ekki komin í nákvæma hluti,“ sagði Óttarr. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert