Lilja og Lárus leiða

Lilja Alfreðsdóttir, varaformaður Framsóknarflokksins.
Lilja Alfreðsdóttir, varaformaður Framsóknarflokksins. mbl.is/Golli

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, alþingismaður og fyrrverandi ráðherra, og Lárus Sigurður Lárusson lögmaður munu leiða lista Framsóknarflokksins í Reykjavík í næstu alþingiskosningum. Þetta var samþykkt á fjölmennum fundi í höfuðstöðvum Framsóknarflokksins nú í kvöld.

„Ég er mjög ánægð með þessa sterku lista sem við munum tefla fram í komandi kosningum og tel þá sýna þann mikla félagsauð sem Framsóknarflokkurinn býr yfir. Við erum að fá inn nýja liðsmenn sem hafa ekki starfað í flokknum og er það ánægjulegt.“ Þetta sagði Lilja Dögg Alfreðsdóttir í tilkynningu.

Lilja Dögg mun leiða í Reykjavík suður og Lárus Sigurður í Reykjavík norður. Alex Björn og Birgir Örn skipa annað og þriðja sæti listans í Reykjavík suður og Kjartan Þór og Tanja Rún í Reykjavík norður.

 Reykjavík Norður:

  1. Lárus Sigurður Lárusson héraðsdómslögmaður
  2. Kjartan Þór Ragnarsson framhaldsskólakennari
  3. Tanja Rún Kristmannsdóttir hjúkrunarfræðinemi
  4. Ágúst Jóhannsson markaðsstjóri og handboltaþjálfari
  5. Ingveldur Sæmundsdóttir viðskiptafræðingur
  6. Hinrik Bergs eðlisfræðingur
  7. Snædís Karlsdóttir laganemi
  8. Ásrún Kristjánsdóttir hönnuður
  9. Ásgeir Harðarson ráðgjafi
  10. Kristrún Njálsdóttir háskólanemi
  11. Guðrún Sigríður Briem húsmóðir
  12. Kristinn Snævar Jónsson rekstrarhagfræðingur
  13. Stefán Þór Björnsson viðskiptafræðingur
  14. Linda Rós Alfreðsdóttir sérfræðingur
  15. Snjólfur F Kristbergsson vélstjóri
  16. Agnes Guðnadóttir starfsmaður
  17. Frímann Haukdal Jónsson rafvirkjanemi
  18. Þórdís Jóna Jakobsdóttir hárskeri
  19. Baldur Óskarsson skrifstofumaður
  20. Sigurður Þórðarson framkvæmdastjóri
  21. Andri Kristjánsson bakari
  22. Frosti Sigurjónsson fyrrv. alþingismaður

 Reykjavík Suður:

  1. Lilja D. Alfreðsdóttir alþingismaður
  2. Alex B. Stefánsson háskólanemi
  3. Birgir Örn Guðjónsson lögreglumaður
  4. Björn Ívar Björnsson háskólanemi
  5. Jóna Björg Sætran varaborgarfulltrúi
  6. Bergþór Smári Pálmason Sighvats þakdúkari
  7. Helga Rún Viktorsdóttir heimspekingur
  8. Guðlaugur Siggi Hannesson laganemi
  9. Magnús Arnar Sigurðarson ljósamaður
  10. Aðalsteinn Haukur Sverrisson framkvæmdastjóri
  11. Kristjana Louise háskólanemi
  12. Trausti Harðarson framkvæmdastjóri
  13. Gerður Hauksdóttir ráðgjafi
  14. Hallgrímur Smári Skarphéðinsson vaktstjóri
  15. Bragi Ingólfsson efnaverkfræðingur
  16. Jóhann H. Sigurðsson háskólanemi
  17. Sandra Óskarsdóttir kennaranemi
  18. Elías Mar Caripis Hrefnuson vaktstjóri
  19. Lára Hallveig Lárusdóttir útgerðarmaður
  20. Björgvin Víglundsson verkfræðingur
  21. Sigrún Sturludóttir húsmóðir
  22. Sigrún Magnúsdóttir fyrrv. alþingismaður
Lárus Sigurður Lárusson.
Lárus Sigurður Lárusson. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert