Gleðst yfir nýrri ríkisstjórn

Árni Páll Árnason.
Árni Páll Árnason. mbl.is/RAX

„Glaður að heyra af nýrri ríkisstjórn undir góðri forystu Katrín Jakobsdóttir er vinkona mín, hreinlynd, trygglynd, dugmikil og skörp svo af ber. Við verðum ekki svikin af henni í forsætisráðuneytinu.“

Þetta segir Árni Páll Árnason, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar og þingmaður flokksins og ráðherra, á Facebook-síðu sinni í tilefni af því að flokksstofnanir Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins samþykktu í gær stjórnarsáttmála verðandi ríkisstjórnar flokkanna.

Árni Páll bendir á að kosningar ráði ríkisstjórnarmyndun og að engin leið hafi verið „að mynda þá stjórn sem sjálfskipaðir spekingar höfðu helst viljað mynda.“ Bætir hann við að allir lýðræðislega þenkjandi stjórnmálamenn yrðu að virða niðurstöður kosninganna og virða og vinna með þeim flokkum sem landsmenn hefðu kosið.

„Það gerir VG nú, rétt eins og Björt Framtíð og Viðreisn gerðu fyrir ári, Sjálfstæðisflokkurinn gerði 2013 og Samfylkingin gerði árið 2007. Hættum svo að úthúða flokkum fyrir að gera það eina rétta: Að spila úr þeim spilum sem kjósendur skammta þeim.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert