Sigríður fer fram á Seltjarnarnesi

Sigríður Sigmarsdóttir býður sig fram í 3. sæti á lista …
Sigríður Sigmarsdóttir býður sig fram í 3. sæti á lista Sjálfstæðismanna á Seltjarnarnesi Ljósmynd/Aðsend

Sigríður Sigmarsdóttir, varaformaður Íþrótta- og tómstundanefndar Seltjarnarness, gefur kost á sér í 3. sæti lista Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi í prófkjöri þann 20. janúar næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Sigríður sendi frá sér.

Þar segir að hún hafi tekið virkan þátt í félags- og íþróttastarfi á Seltjarnarnesi, þar af í Íþrótta- og tómstundanefnd undanfarin 4 ár. Kemur fram að hún leggi áherslu á lausnamiðaða framtíðarsýn fyrir bæjarfélagið, til að takast á við aukna umferð, fjölgun skólabarna, fjölgun aldraðra og vaxandi þörf fyrir fjölskylduþjónustu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert