Uppstilling hjá Miðflokknum

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksis.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksis. mbl.is/Kristinn Magnússon

Stjórn Miðflokksfélags Reykjavíkur hefur ákveðið að stillt verði upp á framboðslista Miðflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík 26. maí.

Í fréttatilkynningu frá félaginu kemur fram að þeir sem hafa áhuga á að gefa kost á sér á framboðslista flokksins eru vinsamlegast beðnir um að senda eftirfarandi upplýsingar á reykjavik@midflokkurinn.is: nafn, heimilisfang, starfsheiti, símanúmer og netfang, ásamt því sæti sem óskað er eftir.

Lokafrestur til að skila inn framboðum er klukkan 12 laugardaginn 17. febrúar.

24. febrúar mun stjórn MFR kynna sex efstu frambjóðendur á framboðslistanum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert