Listi X-D sagður tilbúinn

Eyþór Arnalds mun leiða lista Sjálfstæðisflokksins í borginni.
Eyþór Arnalds mun leiða lista Sjálfstæðisflokksins í borginni. mbl.is/Kristinn Magnússon

Marta Guðjónsdóttir verður eini sitjandi borgarfulltrúinn á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurborg fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.

Samkvæmt frétt Hringbrautar, verður listinn þannig að Eyþór Arnalds verður í efsta sætinu, Hildur Björnsdóttir í öðru sæti, Valgerður Sigurðardóttir í því þriðja og Egill Þór Jónsson í fjórða sæti.

Í næstu sætum á eftir koma Marta, Katrín Atladóttir, Örn Þórðarson, Björn Gíslason, Jórunn Pála Jónasdóttir og Alda Vilhjálmsdóttir.

Mbl.is greindi frá því fyrr í dag að hvorki Kjartani Magnússyni né Áslaugu Maríu Friðriksdóttur hafi verið boðið sæti á lista flokksins. Þeim mun hafa verið hafnað af kjörnefnd flokksins.

Einnig hafði mbl.is fengið það staðfest fyrr í dag að Hildur yrði í öðru sæti á listanum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert