Listi Samfylkingarinnar samþykktur

Frambjóðendur Samfylkingarinnar.
Frambjóðendur Samfylkingarinnar. Ljósmynd/Aðsend

Framboðslisti Samfylkingarinnar fyrir borgarstjórnarkosningar í vor var samþykktur samhljóða og með lófataki á fundi á Hótel Natura í morgun.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri leiðir listann en hann varð efstur í flokksvali sem haldið var fyrr í mánuðinum.

Í efstu fimm sætunum sitja borgarfulltrúar Samfylkingarinnar.  Á eftir Degi koma Heiða Björg Hilmisdóttir, Skúli Helgason, Kristín Soffía Jónsdóttir og Hjálmar Sveinsson. Er sú röð í samræmi við niðurstöðu flokksvalsins, að því er kemur fram í tilkynningu.

Í næstu sætum þar fyrir neðan sitja Sabine Leskopf varaborgarfulltrúi, Guðrún Ögmundsdóttir, fyrrverandi alþingiskona, og Magnús Már Guðmundsson varaborgarfulltrúi.

Í níunda sæti situr Ragna Sigurðardóttir, formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands, og í tíunda sæti Ellen Jacqueline Calmon, fyrrverandi formaður Öryrkjabandalags Íslands.

Listinn er skipaður 20 körlum og 26 konum.

Á meðal annarra frambjóðenda eru Guðjón Friðriksson sagnfræðingur, Steinunn Ása Þorvaldsdóttir, sjónvarpskona og aktívisti, Guðrún Ásmundsdóttir leikkona, Berglind Eyjólfsdóttir lögreglukona, Stefán Benediktsson og Ellert B. Schram, sem báðir eru fyrrverandi alþingismenn, Margrét Pálmadóttir kórstjóri og í heiðurssætinu situr Steinunn Valdís Óskarsdóttir, fyrrverandi borgarstjóri.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert