Tóku þátt í rafrænni kosningu VG

Katrín og Líf á skrifstofu Vinstri grænna í morgun.
Katrín og Líf á skrifstofu Vinstri grænna í morgun. mbl.is/Kristinn Magnússon

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður Vinstri grænna, og Líf Magneudóttir borgarfulltrúi tóku þátt í rafrænni kosningu hjá VG í Reykjavík á skrifstofu flokksins við Túngötu í morgun.

Kosning fyrir komandi borgarstjórnarkosningar hófst á vefsíðu Vinstri grænna á miðnætti og lýkur klukkan 17 í dag.

Forsætisráðherra kýs rafrænt.
Forsætisráðherra kýs rafrænt. mbl.is/Kristinn Magnússon

Valið verður í fimm efstu sætin á framboðslista VG. Valið er leiðbeinandi og leggur kjörnefnd endanlegan lista 46 frambjóðenda fyrir félagsfund VG í Reykjavík.

Alls keppa ellefu félagar í Vinstri grænum um sæti.

Líf með símann í hendi við kosninguna.
Líf með símann í hendi við kosninguna. mbl.is/Kristinn Magnússon

Nýr oddviti Vinstri grænna í Reykjavíkur verður valinn því oddviti VG frá í síðustu kosningum býður sig ekki fram. Líf er ein í framboði í 1. sæti.

Frambjóðendur í forvalinu eru, í stafrófsröð, eftirfarandi:

  • Björn Teitsson blaðamaður, býður sig fram í 3. sæti.
  • Elín Oddný Sigurðardóttir varaborgarfulltrúi, býður sig fram í 2. sæti.
  • Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir grunnskólakennari, býður sig fram í 3.-5. sæti.
  • Gústav Adolf Bergmann Sigurbjörnsson doktorsnemi, býður sig fram í 2-4. sæti.
  • Hermann Valsson grunnskólakennari, býður sig fram í 3. sæti.
  • Hreindís Ylva Garðarsdóttir Holm leikkona, býður sig fram í 4. sæti.
  • Jakob S. Jónsson leiðsögumaður, býður sig fram í 4-5. sæti.
  • Líf Magneudóttir borgarfulltrúi, býður sig fram í 1. sæti.
  • Ragnar Karl Jóhannsson, uppeldis- og tómstundafræðingur, býður sig fram í 4.-5. sæti.
  • René Biasone, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun, býður sig fram í 4. sæti.
  • Þorsteinn V. Einarsson æskulýðsfulltrúi, býður sig fram í 3. sæti.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert