Kynna framboðslista á Akranesi

Valgarður Lyngdal Jónsson.
Valgarður Lyngdal Jónsson. mbl.is/Árni Sæberg

Framboðslisti Samfylkingarinnar í kosningum til bæjarstjórnar Akraness í vor var samþykktur á fjölmennum félagsfundi í vikunni. 

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Samfylkingunni. Ingibjörg Valdimarsdóttir, sem verið hefur oddviti Samfylkingarinnar í bæjarstjórn síðastliðið kjörtímabil, stígur til hliðar og situr í 18. sæti listans.

Nýr oddviti listans er Valgarður Lyngdal Jónsson bæjarfulltrúi og nýir frambjóðendur í 2. og 3. sæti eru þær Gerður Jóhannsdóttir héraðsskjalavörður og Bára Daðadóttir félagsráðgjafi.

Næstu þrjú sæti þar á eftir skipa þau Kristinn Hallur Sveinsson landfræðingur, Guðjón Viðar Guðjónsson rafvirki og Ása Katrín Bjarnadóttir, nemi í umhverfisskipulagi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert