Lilja Einarsdóttir er oddvitaefni B-lista framsóknarmanna og annarra framfararsinna í Rangárþingi eystra fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Listinn var samþykktur á íbúaþingi í félagsheimilinu Hvoli í dag.
Auglýst verður eftir sveitarstjóra að loknum kosningum, að því er kemur fram í tilkynningu.
Fráfarandi sveitarstjóri, Ísólfur Gylfi Pálmason, hættir eftir átta ára starf.
Listi frambjóðenda:
- Lilja Einarsdóttir Oddviti/hjúkrunafræðingur
- Benedikt Benediktsson Sveitarstjórnarmaður/Framleiðslustjóri
- Rafn Bergsson Bóndi
- Guri Hilstad Ólason Kennari
- Bjarki Oddsson Lögreglumaður
- Þóra Kristín Þórðardóttir Snyrtifræðingur
- Þórir Már Ólafsson Sveitarstjórnarmaður/bóndi
- Lea Birna Lárusdóttir Nemi
- Sigurður Þór Þórhallsson Starfsmaður íþróttamiðstöðvar
- Arnheiður Dögg Einarsdóttir Náms- og starfsráðgjafi
- Víðir Jóhannsson Ferðaþjónustubóndi
- Ágúst Jensson Bóndi
- Heiðar Þór Sigurjónsson Bóndi/smiður
- Jóhanna Elín Gunnlaugsdóttir Bóndi