Björg formaður Höfuðborgarlistans

Björg Krist­ín Sigþórs­dótt­ir er formaður Höfuðborgarlistans.
Björg Krist­ín Sigþórs­dótt­ir er formaður Höfuðborgarlistans. mbl.is/Kristinn Magnússon

Björg Kristín Sigþórsdóttir hefur verið kjörin formaður Höfuðborgarlistans sem kynnir lista sinn fyrir komandi borgarstjórnarkosningar í dag.

Kynning á 46 manna lista flokksins fer fram við Ráðhús Reykjavíkur klukkan 15.

Snorri Marteinsson hefur verið kjörinn varaformaður Höfuðborgarlistans og Sif Jónsdóttir framkvæmdastjóri og ritari en kjörið var í embætti listans í morgun.

Ráðhúsið í Reykjavík.
Ráðhúsið í Reykjavík. mbl.is/Ómar Óskarsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert