Silja leiðir Samfylkingu í Norðurþingi

Listi Samfylkingarinnar og annars félagshyggjufólks í Norðurþingi var samþykktur á …
Listi Samfylkingarinnar og annars félagshyggjufólks í Norðurþingi var samþykktur á fundi framboðsins í kvöld. Ljósmynd/Aðsend

Framboðslisti Samfylkingarinnar og annars félagshyggjufólks í Norðurþingi fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 26. maí var samþykktur í kvöld á fundi framboðsins. 

Silja Jóhannesdóttir kemur ný inn og leiðir listann og í öðru sæti er Benóný Valur Jakobsson. Jónas Hreiðar Einarsson og Kjartan Páll Þórarinsson bæjarfulltrúar skipa sjötta og áttunda sæti á listanum.

Framboðslisti Samfylkingarinnar og annars félagshyggjufólks í Norðurþingi: 

  1. Silja Jóhannesdóttir, verkefnastjóri í atvinnuþróun
  2. Benóný Valur Jakobsson verslunarmaður
  3. Bjarni Páll Vilhjálmsson ferðaþjónustubóndi                    
  4. Ágústa Tryggvadóttir hjúkrunarfræðingur                    
  5. Jóna Björk Gunnarsdóttir, BA í mannfræði                             
  6. Jónas Hreiðar Einarsson rafmagnsiðnfræðingur               
  7. Rebekka Ásgeirsdóttir hjúkrunarfræðingur                    
  8. Kjartan Páll Þórarinsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi  
  9. Berglind Pétursdóttir viðskiptafræðingur                     
  10. Gunnar Illugi Sigurðsson hljómlistarmaður                        
  11. Bryndís Sigurðardóttir verkefnastjóri/Öxarfjörður í sókn 
  12. Guðmundur Árni Stefánsson nemi                                              
  13. Ruth Ragnarsdóttir aðstoðarleikskólakennari           
  14. Jónas Friðrik Guðnason, bókavörður og textahöfundur   
  15. Jóna Björg Arnarsdóttir förðunarfræðingur                      
  16. Þorgrímur Sigurjónsson verkamaður                                  
  17. Guðrún Kristinsdóttir grunnskólakennari                     
  18. Hrólfur Þórhallsson skipstjóri                                      
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert