Frjáls með framsókn kynnir lista

Frambjóðendur á lista Frjálsra með framsókn í Hveragerði.
Frambjóðendur á lista Frjálsra með framsókn í Hveragerði.

Framboðslisti Frjáls með framsókn var samþykktur á félagsfundi í Hveragerði í gær.

Garðar R. Árnason, grunnskólakennari og bæjarfulltrúi, leiðir lista Frjálsra með framsókn fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Í öðru sæti er Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir, guðfræðingur og fyrrv. bæjarfulltrúi, í þriðja sæti er Snorri Þorvaldsson lögreglunemi, fjórða sætið skipar Sæbjörg Lára Másdóttir hjúkrunarfræðingur og fimmta sætið skipar Nína Kjartansdóttir þroskaþjálfi.

Framboðslisti Frjálsra með framsókn í Hveragerði:

  1. Garðar R. Árnason, 63 ára grunnskólakennari og bæjarfulltrúi
    2. Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir, 39 ára æskulýðsfulltrúi og fyrrv. bæjarfulltrúi
    3. Snorri Þorvaldsson, 28 ára lögreglunemi
    4. Sæbjörg Lára Másdóttir, 27 ára hjúkrunarfræðingur
    5. Nína Kjartansdóttir, 34 ára þroskaþjálfi
    6. Örlygur Atli Guðmundsson, 55 ára tónlistarmaður, kennari og kórstjóri
    7. Vilborg Eva Björnsdóttir, 43 ára stuðningsfulltrúi
    8. Sigmar Egill Baldursson, 23 ára sölumaður
    9. Steinar Rafn Garðarsson, 35 ára sjúkraflutningamaður
    10. Daði Steinn Arnarsson, 46 ára grunnskólakennari
    11. Adda María Óttarsdóttir, 24 ára hjúkrunarfræðinemi
    12. Herdís Þórðardóttir, 59 ára innkaupastjóri
    13. Guðmundur Guðmundsson, 67 ára bifvélavirki
    14. Garðar Hannesson, 83 ára eldri borgari
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert