Eva Björk oddviti sjálfstæðismanna

Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í Vestur-Skaftafellssýslu.
Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í Vestur-Skaftafellssýslu. Ljósmynd/Aðsend

Eva Björk Harðardóttir verður oddviti Sjálfstæðisflokksins í Vestur-Skaftafellssýslu í sveitastjórnarkosningunum í vor. Samþykkti fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna í Vestur-Skaftafellssýslu framboðslistann einróma á fundi sínum.

Auk Evu Bjarkar skipa efstu sæti listans þau Bjarki V. Guðnason í öðru sæti, Katrín Gunnarsdóttir í því þriðja, Jón Hrafn Karlsson í því fjórða og fimmta sætið skipað Unnur Blandon.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert