Samfylkingin með mikla forystu

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri og oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík.
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri og oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Samfylkingin er stærsti flokkurinn í Reykjavík samkvæmt nýrri könnun sem Fréttablaðið og frettabladid.is hafa gert. Mælist Samfylkingin með 30,5 prósenta fylgi. Sjálfstæðisflokkurinn er næststærsti flokkurinn og mælist með 22,4 prósent.

Þriðji stærsti flokkurinn er VG með tæplega 11 prósent. Viðreisn er með rúm 8 prósent, Píratar með 7,5 prósent og Miðflokkurinn með rúmlega 7 prósent. Þá fengi Sósialistaflokkurinn 3,1 prósent, Flokkur fólksins 2,8 prósent og Framsóknarflokkurinn og Kvennaframboðið fengju 2,5 prósent hvor flokkur. 

Borgin okkar, sem er framboð Sveinbjargar Birnu Sveinbjörnsdóttur, fengi 1 prósent. Alþýðufylkingin, Karlalistinn og Höfuðborgarlistinn fengju minna en 1 prósents fylgi. Svarendur í könnuninni nefndu hvorki Frelsisflokkinn né Íslensku þjóðfylkinguna.

Ef niðurstaða kosninga yrði í takti við þessa nýju könnun fengi Samfylkingin 8 borgarfulltrúa, Sjálfstæðisflokkurinn fengi 6, VG fengi 3 og Viðreisn, Píratar og Miðflokkurinn fengju 2 fulltrúa hver flokkur. 

Þeir flokkar sem núna mynda meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur, það er Samfylkingin, VG og Píratar, fengju samanlagt 13 borgarfulltrúa af 23 og gætu því myndað meirihluta áfram.

Frétt Fréttablaðsins í heild

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert