Leiðtogaumræður í beinni

Samtök atvinnulífsins, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök iðnaðarins og Samtök verslunar og …
Samtök atvinnulífsins, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök iðnaðarins og Samtök verslunar og þjónustu efna til opins umræðufundar um sambúð borgar og atvinnulífs með oddvitum stærstu framboðanna.

Oddvitar stærstu framboðanna í Reykjavík fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 26. maí mætast á opnum fundi í Gamla bíói, en fundurinn hófst 8:30 og hægt er að fylgjast með honum í beinni útsendingu hér fyrir neðan.

Samtök atvinnulífsins, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök iðnaðarins og Samtök verslunar og þjónustu boða til fundarins þar sem rætt verður um sambúð borgar og atvinnulífs.

Þátttakendur eru þau Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri og oddviti Samfylkingarinnar, Dóra Björt Guðjónsdóttir, oddviti Pírata, Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins, Ingvar Jónsson, oddviti Framsóknarflokksins, Líf Magneudóttir, oddviti VG, Vigdís Hauksdóttir, oddviti Miðflokksins, og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, oddviti Viðreisnar. 

Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri SVÞ, Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður SAF, og Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, spyrja frambjóðendur um helstu stefnumál þeirra gagnvart atvinnulífinu en Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA, stýrir fundi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert