Úrslit komin í Kaldrananeshreppi

Frá Drangsnesi í Kaldrananeshreppi.
Frá Drangsnesi í Kaldrananeshreppi. mbl.is/Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Úrslit sveitarstjórnarkosninganna í Kaldrananeshreppi liggja fyrir en þar var kjörsóknin 84%.

Þau sem náðu kjöri í hreppsnefnd eru Finnur Ólafsson, Ingólfur Árni Harladsson, Eva Katrín Reynisdóttir, Margrét Ólöf Bjarnadóttir og Arnlín Óladóttir.

Varamenn eru Halldór Logi Friðgeirsson, Bjarni Þórisson, Kristín Einarsdóttir, Ingi Vífill Ingimarsson og Ómar Pálsson.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert