„Skýrt ákall um breytingar“

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, og Eyþór Arnalds, oddviti flokksins í …
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, og Eyþór Arnalds, oddviti flokksins í Reykjavík, ræða málin á kosningavöku flokksins í gærkvöldi. mbl.is/Árni Sæberg

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármálaráðherra, segir Sjálfstæðisflokkinn vera með lang sterkustu stöðuna þegar litið er á heildarniðurstöðu sveitarstjórnarkosninganna í gær.  

„Það eru auðvitað dæmi um að við missum meirihluta og við erum ekki ánægð að sjá þá þróun sem varð í Vestmannaeyjum, til dæmis,“ sagði Bjarni meðal annars í viðtali á Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Meiri­hluti flokksins í Vest­manna­eyj­um féll og fær flokkurinn þrjá bæj­ar­full­trúa af sjö en hafði áður fimm full­trúa. Flokk­ur­inn hlaut 73,2% at­kvæða 2014 en að þessu sinni 45,4%. Fyr­ir Heima­ey, klofningsframboð úr Sjálfstæðisflokknum, fær þrjá bæj­ar­full­trúa eða jafn­marga og Sjálf­stæðis­flokk­ur­inn. 

Bjarni segir að niðurstöðurnar í Reykjavík séu mjög merkilegar fyrir margar sakir.  „Við fórum yfir 30 prósentin og hljótum að vera ánægð með þá stöðu. Það er meiri dreifing á fylginu heldur en við höfum lengi séð. Þetta er í mínum skýrt ákall um breytingar þar.“

Spyr hvar Viðreisn ætli að finna sig í tilverunni? 

Hann segir stöðuna í borginni aftur á móti vera mjög flókna. „Það er ekkert nýtt að við vinnum ekki með Pírötum, þeir hafa skilgreint sig þannig í verki að þeir sækja alltaf til vinstri og það kemur ekkert á óvart í því. Það er meiri spurning með Viðreisn, hvar þeir ætli að finna sig í tilverunni.“

Bjarni vonar að skynsemi verði höfð að leiðarljósi í stjórnarmyndun í borginni. „Mér finnst það skynsamlegt sem ég heyrði í morgun að nóttin væri ekki besti tíminn til að klára þetta mál. Vonandi anda menn ofan í kviðinn og spyrja sig hvort verið sé að kalla eftir breytingum. Þetta er flókið verkefni fyrir leiðtogana sem voru að berjast um fylgi í borginni og ábyrgðin hvílir á þeim.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert