„Ég er ánægð með þessar tölur. Meirihlutinn að styrkjast og það er mjög gott.“ Þetta segir Ragna Sigurðardóttir, kosningastýra Samfylkingarinnar í Reykjavík, í samtali við blaðamann mbl.is þar sem hún er stödd í kosningapartíi flokksins í Austurbæ.
Tæpur fjórðungur atkvæða hefur verið talinn í Reykjavík, en Samfylkingin er enn með sjö menn inni líkt og eftir að fyrstu tölur voru tilkynntar. Flokkurinn bætti við sig örlitlu fylgi þegar tölur voru kynntar í annað sinn, en mikill fögnuður braust út í Austurbæ þegar ljóst var að Píratar höfðu haft mann af Sjálfstæðisflokknum.
„Þetta snýst auðvitað um það að Reykjavík haldi áfram í þessari átt sem við höfum verið að stefna, sérstaklega hvað varðar skipulagsmál og samgöngumál,“ segir Ragna. „Ég er ánægð með þetta og svo á bara eftir að koma í ljós þegar líður á nóttina hvað gerist næst.“
Ragna er ekki aðeins kosningastýra heldur skipar hún einnig 9. sæti lista Samfylkingarinnar í ár. Sætið er ákveðið baráttusæti, en Ragna hefur mælst inni í borgarstjórn í nokkrum könnunum. Nú ber hins vegar talsvert á milli til þess að hún komist inn.
„Það væri náttúrulega stórsigur ef að það myndi enda þannig að ég komist inn. Það var auðvitað gaman að mælast þannig í tveimur könnunum en þetta snýst auðvitað fyrst og fremst um það að meirihlutinn haldi áfram og jafnvel að hægt sé að mynda breiðari meirihluta þannig að Reykjavík haldi áfram í þessari átt sem við höfum verið að stefna að síðasta kjörtímabil og jafnvel síðustu tvö kjörtímabil.“