Jakob Frímann og Katrín Sif leiða í NA

Efstu fjórir frambjóðendur Flokks fólksins í Norðausturkjördæmi.
Efstu fjórir frambjóðendur Flokks fólksins í Norðausturkjördæmi. Ljósmynd/Aðsend

Jakob Frímann Magnússon, tónlistarmaður og stofnandi Stuðmanna og Græna hersins, mun leiða lista Flokks fólksins í Norðausturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá flokknum. 

Katrín Sif Árnadóttir, þjálfari, skipar annað sætið, Brynjólfur Ingvarsson, læknir, er í þriðja sæti á listanum og í því fjórða er Diljá Helgadóttir, lífefnafræðingur og kennari.

Framboðslistinn í heild sinni er sem hér segir: 

  1. Jakob Frímann Magnússon, tónlistarmaður
  2. Katrín Sif Árnadóttir, þjálfari
  3. Brynjólfur Ingvarsson, læknir/eldri borgari
  4. Diljá Helgadóttir, líftæknifræðingur
  5. Ástrún Lilja Sveinbjörnsdóttir, verkakona/eldri borgari
  6. Tomasz Pitr Kujawski bílstjóri,
  7. Ida Mukoza Ingadóttir, sjúkrahússtrafsmaður
  8. Þorleifur Albert Reimarsson, stýrimaður/öryrki
  9. Snjólaug Ásta Sigurfinnsdóttir, umsjónarmaður
  10. Gísli Gunnlaugsson, tæknifræðingur
  11. Guðrún Þórsdóttir, listakona
  12. Jónína Auður Sigurðardóttir, leikskólakennari
  13. Sigurður Stefán Baldvinsson, öryrki
  14. Karen Telma Birgisdóttir, þjónustufulltrúi
  15. Agnieszka Kujawska, veitingamaður
  16. Þórólfur Jón Egilsson, öryrki
  17. Páll Ingi Pálsson, bifvélavirki
  18. Regína B. Agnarsdóttir, starfsstúlka í aðhlynningu
  19. Erna Þórunn Einisdóttir, félagsliði
  20. Kjartan Heiðberg kennari/eldri borgari
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert