Formenn stjórnmálaflokkanna mætast í pallborðsumræðum á vegum ASÍ kl. 11. Til umræðu verða áherslur ASÍ vegna þingkosninganna 2021 sem kynntar hafa verið undir yfirskriftinni „Það er nóg til“. Hægt er að fylgjast með umræðunni í beinni útsendingu á mbl.is.
Sérstaklega verður rætt um húsnæðismál, heilbrigðismál, menntamál, atvinnumál og afkomu og jöfnuð.
Stjórnandi pallborðsins er Kristján Kristjánsson fjölmiðlamaður.