Vill nýja nálgun fjármálakerfis

Inga Sæland er í forystuviðtali í Dagmálum.
Inga Sæland er í forystuviðtali í Dagmálum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, fer vígreif inn í síðustu daga kosningabaráttunnar. Hún segist finna fyrir miklum meðbyr þessa dagana og að þar sé flokkurinn að uppskera fyrir þrotlausa vinnu á vettvangi þingsins. Enginn hafi lagt fram jafn mörgt þingmannamál og hún og nokkur þeirra hafi hlotið áheyrn meirihlutans.

Inga er gestur í Dagmálum í dag, opnu streymi á mbl.is, og svarar þar spurningum um stefnu flokks síns. Hann boðar kerfisbreytingar sem miða að því að bæta stöðu hinna verst settu í samfélaginu. Á það m.a. að nást með því að skattleysismörk verði í einni svipan færð í 350 þúsund krónur. Það verði jafnframt skilyrði flokksins fyrir hvers kyns samstarfi að kosningum loknum.

Horfa má á þáttinn í heild sinni, í opnu streymi hér

30 milljarða pakki

Spurð út í hvort flokkurinn hafi reiknað kostnaðinn við þessa aðgerð, segir Inga að hann liggi fyrir og sé ekki óyfirstíganlegur. Þó hafi flokkurinn viljað færa mörkin ofar, en þess sé ekki kostur nú.

„Eini kostnaðurinn sem er sýnilegur er um 30 milljarðar sem ríkið verður að koma með til sveitarfélaganna, því að þeir sem eru með lægstu tekjurnar [...] fjármunirnir sem eru að fara frá þeim eru í formi útsvars til sveitarfélaganna. Það er það sem ríkissjóður þyrfti og við ætlumst til að hann taki á sig og skili til sveitarfélaganna.“

Hún segir það ekki kalla á skattahækkanir, heldur tilfærslur og breytingar á núverandi skattkerfi.

„Við viljum færa persónuafsláttinn frá mér, og örugglega eruð þið báðir með það há laun að ég myndi hrifsa hann af ykkur líka. Ég myndi taka persónuafsláttinn af þeim sem hafa miklu meira en nóg fyrir sig og færa hann til þeirra sem eiga bágt. Þetta eru um 56 milljarðar króna í þessu tilfærslukerfi sem fara frá hinum efnameiri til þeirra sem þurfa virkilega á okkar hjálp að halda.“

Á hvaða launum er fólkið sem verður fyrir þessum skerðingum?

„Þetta er fallandi persónuafsláttur sem byrjar strax að falla í öðru þrepinu þegar þú ert kominn með rétt tæpar 600 þúsund krónur. Þeir sem eru í meðallaunum eða undir því fá heldur fleiri krónur en færri. Við getum dálítið stýrt því með kvarðanum hvort við getum látið hann falla hratt eða vera aflíðandi.“

Þið viljið þá hækka skatta á fólk með 600.000 krónur eða meira?

„Ja, það má kannski orða það sem svo. Við viljum alla vega taka pínulítið af persónuafslættinum. Það er sanngjarnt, réttlátt og eðlilegt,“ sagði Inga og ítrekaði í léttum dúr að hún myndi hækka skattinn enn meira á fyrirspyrjendur í þættinum.

Alltaf stutt í hláturinn hjá Ingu Sæland, formanni Flokks fólksins.
Alltaf stutt í hláturinn hjá Ingu Sæland, formanni Flokks fólksins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Kallar eftir grundvallarbreytingum á fjármálakerfinu

Inga fer ófögrum orðum um íslenska fjármálakerfið og vill láta banna verðtryggingu á neytenda- og fasteignalánum. Flokkurinn hafi viljað aftengja verðtrygginguna vegna þeirra áhrifa sem kórónuveiran hefur haft á verðbólgu, en að bannið eigi þó að gilda til framtíðar. Hún segir það nauðsynlegt. Fátækt fólk sé neytt til að taka verðtryggð lán þar sem greiðslubyrði óverðtryggðra lána sé svimandi há.

Hún er þá spurð hvernig Flokkur fólksins vilji verja fólk fyrir áhrifum verðbólgunnar á óverðtryggð lán sem séu ekki síður næm fyrir þeim vágesti og segir hún mikilvægt að biðla til bankanna um að þeir lækki vexti.

„Vextir eru t.d. alltof, alltof, alltof háir miðað við stýrivexti. Þetta er bara grín [...] þeir borga okkur ekkert fyrir innlánin okkar. Þeir borga okkur ekkert fyrir fjármagnið sem þeir fá að valsa um með sem við erum að leggja inn sem innlán.“

Hvernig viltu taka á þeirri stöðu?

„Við verðum bara að halda áfram að eiga Landsbankann okkar og láta hann verða ígildi viðskiptabanka. Við verðum bara að gjöra svo vel að taka allt kerfið og fínstilla það upp á nýtt. [...] Hér eigum við banka sem okrar og kúgar og pínir okkur eigendur sína. Við eigum líka að aðskilja viðskipti og fjárfestingu. Við eigum ekki að láta það líðast að innlánin okkar séu notuð í misvitrar fjárfestingar bankanna og þeir borga okkur núll komma eitthvað prósent fyrir að fá peningana okkar en svo þurfum við að borga þeim margra prósenta – 6-7 prósenta vexti til að fá þá lánaða til baka.“

Bankarnir kúga fólk

Hvað á að gera við innlán bankanna megi þeir ekki fjárfesta fyrir þau?

„Þeir eiga bara að gjöra svo vel að passa þá og ávaxta fyrir okkur og vera með þetta algjörlega aðskilið. Þeir eiga bara að fara eins og lífeyrissjóðirnir að gambla með peningana og fara með þá á erlenda markaði og kaupa einhverjar tuskubúðir í London [...]

Þei eiga alla vega ekki að kúga hinn almenna Íslending. Fátækt fólk getur ekki komið sér þaki yfir höfuðið. Bankarnir eru fyrir fólkið, fólkið er ekki fóður fyrir bankana sem skila hér tugum milljarða í arð.“

Hrein blessun að losna við Ólaf Ísleifs og Karl Gauta

Flokkur fólksins lenti í klemmu eftir að helmingur þingflokksins tók þátt í óvarlegu spjalli á Klaustri haustið 2018. Þá var þeim Karli Gauta Hjaltasyni og Ólafi Ísleifssyni vikið úr flokknum.

„Þó að það sé ekki fallegt að segja það þá var það blessun fyrir Flokk fólksins og varð þess valdandi að við Guðmundur Ingi vorum algjörlega frjáls að þeim verkum sem við vorum að vinna án þess að nokkur væri að skipta sér af því.“

Komu Ólafur og Karl í veg fyrir að þið gætuð um frjálst höfuð strokið?

„Já, það var í rauninni alltaf svona þrúgandi fannst mér þetta andrúmsloft í kringum þá og ég er að heyra það núna út á við að þeim leið ekki sérlega vel að vera í þingflokki með tveimur öryrkjum. Þetta var svolítið mikið fyrir neðan þeirra virðingu. Svo ég ítreka að við vorum virkilega blessuð að taka þá ákvörðun að láta þá fara.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert