Fólk í einangrun eða sóttkví getur kosið úr bílnum

Alþingiskosningar fara fram þann 25. september.
Alþingiskosningar fara fram þann 25. september. Eggert Jóhannesson

Þeir sem eru í einangrun eða sóttkví á kjördag munu geta greitt atkvæði úr bílum sínum eða á eigin dvalarstað samkvæmt nýjum leiðbeininingum dómsmálaráðuneytisins. Kosning utan kjörfundar á sérstökum kjörstað getur hafist þann 20. september. 

Á sérstökum kjörstað getur kjósandi mætt á bifreið en þarf þá að hafa meðferðis skilríki og ritföng til þess að geta gert grein fyrir því hverjum hann vilji greiða atkvæði „t.d. með því að sýna blað með listabókstaf framboðs eða á annan hátt sem kjörstjóri telur öruggan og nægilega skýran.

Viðkomandi má hvorki stíga út úr bílnum eða opna hurð og glugga og verður því að gera grein fyrir atkvæði sínu í gegnum bílrúðuna. 

Kosningar á sérstökum utankjörfundarkjörstað geta hafist mánudaginn 20. september en sýslumenn, hver í sínu umdæmi, auglýsa á vefsíðunni syslumenn.is hvar og hvenær sú atkvæðagreiðsla fer fram.

Mega greiða atkvæði að heiman

Kjósendur í sóttkví eða einangrun hafa einnig kost á því að greiða atkvæði heiman frá. Beiðni um atkvæðagreiðslu á dvalarstað skal beint til sýslumanns í því umdæmi þar sem viðkomandi dvelst.

Sé dvalarstaður kjósanda innan kjördæmis hans skal beiðnin berast sýslumanni eigi síðar en kl. 10:00 á kjördag, en sé dvalarstaður kjósanda utan kjördæmis hans eigi síðar en kl. 10:00 fimmtudaginn 23. september 2021. Beiðninni skal fylgja staðfesting heilbrigðisyfirvalda á að viðkomandi sé í einangrun eða sóttkví fram yfir kjördag og upplýsingar um hvers vegna þeim sem er í sóttkví er ekki unnt að greiða atkvæði á sérstökum utankjörfundarstað,“ segir í tilkynningu á vef stjórnarráðs.

Atkvæðagreiðsla fyrir kjósendur í sóttkví í forsetakosningunum síðasta sumar.
Atkvæðagreiðsla fyrir kjósendur í sóttkví í forsetakosningunum síðasta sumar. mbl.is/Íris Jóhannsdóttir

Þar verður sama fyrirkomulag og á sérstökum utankjörfundarstað. Kjósandi upplýsir kjörstjóra um hvernig hann vilji greiða atkvæði með því að sýna blað með listabókstaf eða á annan hátt sem kjörstjóri telur nægjanlega skýran.

Þó er heimilt að synja kjósanda um að greiða atkvæði á dvalarstað ef sóttvarnaryfirvöld meta það svo að atkvæðagreiðslu verði ekki við komið án þess að tefla heilsu kjörstjóra í hættu. 

Nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni island.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert