Áætla að ráðstöfunartekjur heimilanna muni aukast

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, ásamt Daða Má Kristóferssyni, varaformanni …
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, ásamt Daða Má Kristóferssyni, varaformanni flokksins. mbl.is/Arnþór Birkisson

Með því að tengja krónuna við evru áætlar Viðreisn að ráðstöfunartekjur heimilanna muni aukast um 72 þúsund krónur á mánuði eða 900 þúsund krónur á ári, enda muni vextir, vöruverð og þjónustukostnaður lækka. Miðast þetta við par með tvö börn, sem skuldar 31 milljón króna.

Þetta kom fram á blaðamannafundi Viðreisnar í dag, þar sem áhrif stefnumála flokksins fyrir komandi þingkosningar voru kynnt og hvernig þau verða fjármögnuð. Bæði er litið til áhrifa á ríkissjóð og heimili landsins.

Tekjur ríkisins gætu aukist um 125 milljarða

Viðreisn vill stilla útgjöld þannig af að að ríkissjóður verði rekinn í jafnvægi, að sögn Daða Más Kristóferssonar, varaformanns flokksins. „Tekjur ríkissjóðs vegna þeirra breytinga sem við boðum eru auðvitað háðar óvissu.“

Tekjur ríkissjóðs gætu aukist um 125 milljarða á kjörtímabilinu samkvæmt áætlunum Viðreisnar, vegna lægri vaxtakostnaðar ríkisins, aukins hagvaxtar og markaðsleiðar í sjávarútvegi.

Viðreisn hyggst auka fjárframlög í tiltekna málaflokka, sérstaklega til heilbrigðis-, velferðar- og menntamála, um samtals 90 milljarða. Af því leiðir að bætt afkoma ríkissjóðs verður 35 milljarðar, til að koma í veg fyrir halla.

Vilja auka útgjöld um 90 milljarða

Á kjörtímabilinu vill Viðreisn auka útgjöld til heilbrigðiskerfisins um 33 milljarða, til velferðarmála um 26 milljarða, til menntamála um 13 milljarða og til nýsköpunar um sjö milljarða. Samtals myndu útgjöld ríkisins þá aukast um 90 milljarða á meðan tekjur aukast um 125 milljarða.

„Forgangsmál hjá okkur er að niðurgreiða sálfræðiþjónustu, minnka skerðingar í almannatryggingakerfinu og efla menntun og nýsköpun,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert