Sagði ljóst að fólk vildi að aðrir tækju við

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingflokksformaður Vinstri grænna.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingflokksformaður Vinstri grænna. mbl.is/Arnþór

„Verði þetta niðurstaða kosninganna á laugardaginn tel ég einsýnt að Vinstri græn verði utan ríkisstjórnar.“

Þetta sagði Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingflokksformaður Vinstri grænna, um niðurstöður nýs þjóðarpúls Gallup.

Skrifaði hún þetta í stuttri færslu á Facebook fyrr í kvöld, en hefur síðan fjarlægt hana.

Bjarkey var ómyrk í máli eins og sést á skjáskotinu hér að neðan:

„Skilaboðin eru skýr, fylgið fer úr 17% í 10% og því ljóst að vilji er til þess að aðrir taki við keflinu.“

Skjáskot/Facebook

Náðu ellefu en fengju sex núna

Rík­is­stjórn­ar­flokk­arn­ir missa meiri­hluta á þingi miðað við niðurstöðurnar. Fengju þeir aðeins 30 þing­menn sam­anlagt.

Þar af nær helmingast þingsætafjöldi Vinstri grænna, sem náðu ellefu þingmönnum í síðustu kosningum en fengju sex miðað við þessa könnun.

Tveir þingmenn gengu að vísu úr flokknum á yfirstandandi kjörtímabili og er flokkurinn því með níu þingmenn í dag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert