„Margt sem sameinar okkur Þorgerði Katrínu“

„Miðað við þá stefnu sem Þorgerður lýsir á vettvangi Viðreisnar, eru eitthvað meiri líkur á að þið setjist í ríkisstjórn með þeim heldur en Sjálfstæðisflokknum?“

Þannig spurði Stefán Einar Stefánsson formann Samfylkingarinnar, Loga Einarsson, eftir að hann taldi upp ástæður þess að flokkurinn hefur ákveðið að útiloka samstarf með Sjálfstæðisflokknum á næsta kjörtímabili. 

„Það er svo margt sem sameinar okkur Þorgerði Katrínu. Margt sem að við getum sameinast um,“ svaraði Logi og neitaði því að nokkuð yrði gefið eftir í skattaloforðum Samfylkingarinnar.

„Munum örugglega ná saman með öðrum flokkum“

Logi var gest­ur í Dag­mál­um þar sem for­svars­menn stjórn­mála­flokka ræddu stöðuna fyr­ir kom­andi þing­kosn­ing­ar. Fóru umræðurn­ar fram í höfuðstöðvum Morg­un­blaðsins við Há­deg­is­móa í Reykja­vík.

 „Ég er sammála um það að þegar við setjumst niður og förum að mynda stjórn eftir kosningarnar, þú tekur eftir því að það verður eftir kosningar en ekki í þessum þætti, þá munum við örugglega ná saman með öðrum flokkum,“ bætti Logi við.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert