Verða með símavakt á kjördag

Kosið er á morgun, laugardag.
Kosið er á morgun, laugardag. mbl.is/Ómar Óskarsson

Hægt verður að hringja í dómsmálaráðuneytið og þjóðskrá á kjördag, til að leita upplýsinga um kjörskrá, kjörstaði og önnur atriði sem lúta að framkvæmd alþingiskosninganna.

Frá þessu er greint í tilkynningu frá stjórnarráðinu.

Segir þar að í ráðuneytinu verði veittar upplýsingar frá klukkan níu að morgni til klukkan 22 að kvöldi. Símanúmer þar eru 545-9050 og 545-9070.

Þjóðskrá verður sömuleiðis með símavakt á kjördag, frá klukkan 10 að morgni til klukkan 22 að kvöldi. Þar verða meðal annars veittar upplýsingar um hvar kjósandi er á kjörskrá.

Símanúmerið þar er 515-5300, en einnig má hafa samband með tölvupósti á netfangið kosningar@skra.is.

Reykjavíkurborg verður sömuleiðis með vakt frá klukkan 8 til 22, í símanúmerinu 411-4915.

Kjörstaðir og kjörskrá

Bent er á að sveitarfélög auglýsi kjörstaði og að mörg þeirra birtai einnig upplýsingar um kjördeildir á vefjum sínum. Dómsmálaráðuneytið hefur safnað upplýsingum um kjörstaði og tengt í slíkar upplýsingar á vefjum sveitarfélaganna.

Tekið er fram að enn séu allnokkur sveitarfélög ótengd, meðal annars vegna þess að upplýsingar hafi ekki birst á vefjum þeirra.

Kjósendur geta enn fremur kannað hér hvar þeir eru skráðir á kjörskrá.

Sóttkví eða einangrun

Kjósendur sem eru í sóttkví eða einangrun vegna Covid-19 mega ekki greiða atkvæði á almennum kjörstöðum eða utankjörfundarstöðum. Þeim er hins vegar heimilt að greiða atkvæði utan kjörfundar á sérstökum kjörstöðum með aðstoð kjörstjóra.

Atkvæðagreiðsla á sérstökum kjörstöðum hófst 20. september en opnunar- og lokunartími hvers kjörstaðar er mismunandi eftir umdæmum sýslumanna.

Hér er að finna nánari upplýsingar um framkvæmd atkvæðagreiðslunnar og þar er einnig unnt að sækja um kosningu á dvalarstað. Ef nánari upplýsinga er óskað er unnt að senda tölvupóst á netfangið covidkosning@dmr.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert