156 sinnum strikað yfir nafn Ásmundar

Ásmundur Friðriksson.
Ásmundur Friðriksson.

Nú þegar niður­stöður kosn­ing­anna liggja fyr­ir má sjá hvort út­strik­an­ir hafi haft áhrif á lista þing­flokka.

Í Suðurkjördæmi var oftast strikað yfir nafn Ásmundar Friðrikssonar, sem skipaði þriðja sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu, eða 156 sinnum sem jafngildir 2,14% kjósenda flokksins.

Mun oftar var strikað yfir nafn Ásmundar en nokkurs annars þingmanns í kjördæminu en á eftir honum kemur Vilhjálmur Árnason, sem skipaði annað sæti á lista Sjálfstæðisflokksins. 38 sinnum var strikað yfir nafn hans sem jafngildir 0,52% kjósenda flokksins.

Guðrún og Sigurður Ingi

Þar á eftir kemur Guðrún Hafsteinsdóttir, sem skipaði fyrsta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu, en 28 sinnum var strikað yfir nafn hennar sem jafngildir 0,38% kjósenda flokksins.

17 sinnum var strikað yfir nafn Sigurðar Inga Jóhannssonar sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðherra, sem skipaði efsta sæti á lista Framsóknarflokksins í kjördæminu, sem jafngildir 0,24% kjósenda flokksins.

Til þess að fella mann í fyrsta sæti niður um sæti þurfa 25% kjós­enda að strika út nafn hans, hlut­fallið fyr­ir annað sætið er 20% og fyr­ir þriðja sætið er það 14,3%.

Hér má sjá list­ann í heild sinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert