Vill annað sætið á lista Sjálfstæðisflokksins

Björg Fenger, forseti bæjarstjórnar Garðabæjar og formaður íþrótta- og tómstundaráðs.
Björg Fenger, forseti bæjarstjórnar Garðabæjar og formaður íþrótta- og tómstundaráðs. Ljósmynd/Aðsend

Björg Fenger, forseti bæjarstjórnar Garðabæjar og formaður íþrótta- og tómstundaráðs, sækist eftir öðru sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ. Prófkjörið fer fram þann 5. mars.

Þetta kemur fram í tilkynningu sem send var á fjölmiðla.

Björg hefur verið bæjarfulltrúi í Garðabæ síðastliðin fjögur ár en þar á undan var hún varabæjarfulltrúi. Á kjörtímabilinu hefur hún einnig setið í bæjarráði, verið stjórnarformaður Strætó bs. auk þess sem hún hefur verið í ýmsum ráðum og nefndum á vegum bæjarins.

„Garðabær er ört stækkandi sveitarfélag og fram undan eru mörg áhugaverð og mikilvæg verkefni. Ég hef brennandi áhuga og metnað til að vinna að því að Garðabær haldi áfram að vera eftirsóknarvert bæjarfélag í fremstu röð, þar sem góð þjónusta við bæjarbúa, skilvirk stjórnsýsla, ráðdeild í rekstri og lágar álögur eru hafðar að leiðarljósi,“ er haft eftir Björgu í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert