Forseti bæjarstjórnar vill leiða lista Framsóknar

Helgi S. Haraldsson, forseti bæjarstjórnar í Árborg.
Helgi S. Haraldsson, forseti bæjarstjórnar í Árborg. Ljósmynd/Aðsend

Helgi Sigurður Haraldsson, forseti bæjarstjórnar í Árborg, mun bjóða sig fram til sætis efst á lista Framsóknar fyrir komandi sveitastjórnarkosningar. Prófkjör flokksins fer fram 12. mars næstkomandi. 

Frá þessu greinir Helgi í fréttatilkynningu. 

Þar segir að hann hafi setið í sveitarstjórn Árborgar síðastliðin 12 ár og þar af sem fjögur ár í sæti forseta bæjarstjórnar.

Á undanförnum árum hefur Svf. Árborg stækkað gríðarlega, mikil uppbygging hefur átt sér stað og mikil fjölgun íbúa. Það hafa verið miklar áskoranir á þessum árum að tryggja öllum góða þjónustu og skipulag uppbyggingarinnar. Ég hef haft brennandi áhuga á því að taka þátt í þeirri vinnu og hef mikinn áhuga á að fá tækifæri til að halda því áfram næstu árin. Ég vil tryggja áfram Svf. Árborg sem góðan búsetukost og að allir íbúar finni að þar er gott að eiga heima,“ segir Helgi í fréttatilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert