Helga vill annað sætið í Mosfellsbæ

Helga Jóhannesdóttir, varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ.
Helga Jóhannesdóttir, varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ. Ljósmynd/Helga Jóhannesdóttir

Helga Jóhannesdóttir, varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ, býður sig fram til 2. sætis á lista flokksins í bænum.

Hún greinir frá þessu í fréttatilkynningu.

Prófkjör flokksins í Mosfellsbæ fer fram laugardaginn 5. febrúar.

Helga er viðskiptafræðingur að mennt með meistaragráðu í opinberri stjórnsýslu sem og í stjórnun og stefnumörkun. Helga hefur starfað sem fjármála- og rekstrarstjóri til margra ára og starfar sem forstöðumaður í dag og hefur hún auk þess setið í hinum ýmsum stjórnum og nefndum síðastliðin ár.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert