Ingvar vill leiða lista Sjálfstæðisflokksins

Ingvar P. Guðbjörnsson.
Ingvar P. Guðbjörnsson. Ljósmynd/Aðsend

Ingvar P. Guðbjörnsson, upplýsingafulltrúi Sjálfstæðisflokksins, gefur kost á sér til forystu D-listans í Rangárþingi ytra fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Frá þessu greinir hann í færslu á facebook-síðu sinni.

„Ég hef fundið mikinn meðbyr undanfarin misseri sem ég er afar þakklátur fyrir. Hugurinn er alltaf í heimahögunum og ég hef bæði metnað og áhuga á að nýta þá reynslu sem ég hef aflað mér í þágu sveitarfélagsins okkar,“ skrifar Ingvar.

Þá segir Ingvar að hann hafi alltaf haft sterkar skoðanir og hugsjónir sem hann vilji fylgja eftir og að mörg spennandi tækifæri séu framundan í samfélagi Rangárþings ytra.

Fyrrum aðstoðarmaður ráðherra

„Ég settist í sveitarstjórn fyrir 20 árum þegar ég var 23 ára gamall og sinnti þeim störfum í 12 ár. Á þeim tíma aflaði ég mér mikillar reynslu og þekkingar á sveitarstjórnarmálunum og ekki síst á samfélaginu okkar í Rangárþingi ytra. Síðar starfaði ég sem blaðamaður og svo sem aðstoðarmaður ráðherra sem var einstök og dýrmæt reynsla sem ég tel að geti nýst mér vel,“ skrifar Ingvar en hann var aðstoðarmaður Ragnheiðar Elínar Árnadóttur iðnaðar- og viðskiptaráðherra frá 2013-2017.

Þá bendir Ingvar á að enn hafi ekki verið tekin ákvörðun um með hvaða hætti verði stillt upp á listann en að ákvörðun hans um að hann vilji leiða listann liggi fyrir.

„Ég hlakka til að eiga við ykkur samtal á næstu misserum um samfélagið okkar og þau málefni sem brenna á mér og á ykkur,“ skrifar Ingvar.

Mbl.is. sagði frá því fyrr í dag að Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfsæðisflokksins í Suðurkjördæmi, hefði fengið áskoranir um að gefa kost á sér á lista flokksins í Rangárþingi ytra í komandi sveitarstjórnarkosningum. Ásmundur sagðist ekki enn vera búinn að taka ákvörðun um framboð en hann ætlaði að melta hlutina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert