14 taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði

Efri röð: Örn, Kristín, Helga Ingólfsdóttir, Rósa, Magnús Ægir, Bjarni, …
Efri röð: Örn, Kristín, Helga Ingólfsdóttir, Rósa, Magnús Ægir, Bjarni, Guðbjörg Oddný og Orri. Neðri röð: Þórður Heimir, Díana Björk, Kristinn og Helga Björg. Á myndina vantar: Hilmar og Lovísu Björgu. Ljósmynd/Silla Páls

Samtals 14 taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar, en prófkjörið fer fram 3.-5. mars. Framboðsfrestur rann út 15. janúar og hafa öll framboðin verið úrskurðuð gild. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum í Hafnarfirði.

Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri er sú eina sem sækist eftir fyrsta sætinu, en þó eru einhverjir sem hafa ekki gefið upp eftir því hvaða sæti þeir sækjast eftir. Aðrir sækjast eftir sæti neðar á listanum.

Frambjóðendur eru eftirfarandi:

  • Þórður Heimir Sveinsson, lögmaður
  • Örn Geirsson, verkefnastjóri og sölumaður
  • Bjarni Geir Lúðvíksson, framkvæmdastjóri
  • Díana Björk Olsen, ráðgjafi og verkefnastjóri
  • Guðbjörg Oddný Jónasdóttir, varabæjarfulltrúi og varaþingmaður
  • Helga Ingólfsdóttir, bókari og bæjarfulltrúi
  • Helga Björg Loftsdóttir, meistaranemi
  • Hilmar Ingimundarson, viðskiptafræðingur
  • Kristinn Andersen, verkfræðingur og forseti bæjarstjórnar
  • Kristín María Thoroddsen, bæjarfulltrúi
  • Lovísa Björg Traustadóttir, framkvæmdastjóri og varabæjarfulltrúi
  • Magnús Ægir Magnússon, rekstrarhagfræðingur og varabæjarfulltrúi
  • Orri Björnsson, forstjóri og varabæjarfulltrúi
  • Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert