„Ég er á bleiku skýi“

Brynja Dan á kosningavöku Framsóknar í haust.
Brynja Dan á kosningavöku Framsóknar í haust. mbl.is/Hólmfríður

„Þetta er dásamlegt. Ég er á bleiku skýi,“ segir Bryjan Dan, oddviti Framsóknarflokksins í Garðabæ, í samtali við mbl.is um nýjustu tölur úr Garðabæ.

Samkvæmt þeim mælist flokkurinn inni með einn mann en fer úr 3,1% í 12,4%

Kom á óvart

Kom þetta á óvart?

„Já, við erum auðvitað ekki búin að eiga fulltrúa inn í 12 ár og erum að fara úr 3,1% í 12,4%.“

Hvernig skýrir þú þessa fylgisaukningu?

„Við erum auðvitað búin að vera á einhverri bylgju síðasta árið. En við erum vissulega að uppskera eins og við sáum, og við erum búin að vera sá vel. Þetta var í kortunum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert