Meirihluti myndaður í Húnaþingi vestra

Magnús Magnússon (t.v.) og Þorleifur Karl Eggertsson (t.h.).
Magnús Magnússon (t.v.) og Þorleifur Karl Eggertsson (t.h.).

Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn í Húnaþingi vestra undirrituðu í gærkvöldi formlegan málefnasamning um samstarf í sveitarstjórn. 

„Samningurinn tiltekur helstu framkvæmdir sem listarnir eru sammála um að setja á oddinn á kjörtímabilinu og þau málefni sem unnið verður að á ýmsum sviðum sveitarfélagsins. Einnig er lögð rík áhersla á þau mál er varða samskipti sveitarfélags, ríkis og innviðafyrirtækja. Þar er undirstrikað mikilvægi þess að staðið verði við þær skuldbindingar af hálfu hins opinbera, sem þegar hafa verið gefnar, og bætt verði úr í þeim málum og málaflokkum sem út af hafa staðið,“ segir í fréttatilkynningu um málið. 

Þorleifur Karl Eggertsson, oddviti Framsóknar, verður oddviti sveitarstjórnar en Magnús Magnússon, oddviti Sjálfstæðisflokks, verður formaður byggðarráðs. Leggja flokkarnir áherslu á að ráðning sveitarstjóra fari fram með faglegum hætti. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert