Valdimar Víðisson, oddviti Framsóknarflokksins í Hafnarfirði, telur flokkinn ekki hafa svikið Samfylkinguna um samtal eftir kosningarnar 14. maí, en Guðmundur Árni Stefánsson, oddviti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði, sakaði Framsóknarflokkinn um að hafa svikið flokkinn um samtal við Vísi.
Í samtali við mbl.is segir Valdimar það alltaf hafa legið fyrir að flokkurinn myndi setjast niður með Sjálfstæðisflokknum skyldi meirihluti þeirra halda velli, sem hann gerði.
„Mér finnst frekar stór orð í sjálfu sér að segja svik, einfaldlega vegna þess að við vorum að standa við það sem sögðum.“
Líkt og mbl.is hefur greint frá munu Rósa Guðbjartsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði og bæjarstjóri, og Valdimar deila bæjarstjórastólnum á næsta kjörtímabili.
Spurður hvers vegna flokkurinn hafi gert kröfu um bæjarstjórastólinn segir Valdimar fylgisaukninguna frá síðustu sveitarstjórnarkosningum árið 2018 vera meginástæðu.
Flokkurinn hlaut 8% atkvæða árið 2018 og einn kjörinn fulltrúa en nú í maí hlaut hann 13,7% greiddra atkvæða og tvo kjörna fulltrúa.
Valdimar segir bakland flokksins jafnframt hafa kallað eftir því að flokkurinn gerði sig meira gildandi.
„Við fundum það einnig í okkar baklandi að það var einhugur um það að við myndum gera okkur meira gildandi, sem sagt hafa meira vægi á næsta kjörtímabili.“
Valdimar kveðst vera sáttur með að deila embættinu með Rósu. Spurður hvort að Framsókn hafi krafist þess að að flokkurinn fengi bæjarstjórastólinn allt kjörtímabilið segir hann svo ekki vera.