Kjartan áfram bæjarstjóri í Reykjanesbæ

Fulltrúar meirihlutans í Reykjanesbæ. F.v. Sverrir Bergmann Magnússon, Guðný Birna …
Fulltrúar meirihlutans í Reykjanesbæ. F.v. Sverrir Bergmann Magnússon, Guðný Birna Guðmundsdóttir, Friðjón Einarsson, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Valgerður Björk Pálsdóttir, Díana Hilmarsdóttir og Bjarni Páll Tryggvason. Ljósmynd/Aðsend

Framsókn, Samfylking og Bein Leið hafa myndað nýjan meirihluta í Reykjanesbæ og mun sá meirihluti taka við á bæjarstjórnarfundi þann 7. júní nk. 

Kjartan Már Kjartansson, núverandi bæjarstjóri verður endurráðinn sem bæjarstjóri. Friðjón Einarsson oddviti Samfylkingar verður formaður bæjarráðs fyrri hluta kjörtímabilsins og Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir oddviti Framsóknar verður forseti bæjarstjórnar fyrri hluta kjörtímabilsins og formaður bæjarráðs seinni hluta kjörtímabilsins.

Helstu áhersluatriði nýs meirihluta eru að viðhalda kröftugri uppbyggingu og horfa til framtíðar, að því er fram kemur í tilkynningu.

Þar segir enn fremur að mikil fólksfjölgun og breytt samfélagsmynstur kalli á aukna þjónustu og hraða uppbyggingu innviða. Brýnt sé að mæta þeirri þörf en á sama tíma að tryggja áfram trausta fjármálastjórn.

Meirihlutinn mun leiða mikilvæg verkefni á næstu árum í góðu samstarfi við fulltrúa allra flokka í bæjarstjórn og íbúa Reykjanesbæjar. Það eru bjartir tímar framundan og saman munum við gera gott samfélag enn betra,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert