Regína ráðin bæjarstjóri Mosfellsbæjar

Regína er sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og hefur gegnt því starfi …
Regína er sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og hefur gegnt því starfi síðastliðin fimm ár. Ljósmynd/Aðsend

Regína Ásvaldsdóttir hefur verið ráðin bæjarstjóri Mosfellsbæjar fyrir kjörtímabilið 2022-2026. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Mosfellsbæ.

Alls sóttu 30 manns um starfið.

Fyrrverandi bæjarstjóri Akraness

Regína er sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og hefur gegnt því starfi síðastliðin fimm ár. Áður gegndi hún stöðu bæjarstjóra Akraneskaupstaðar árin 2013-2017. Þá hefur hún starfað sem framkvæmdastjóri Festu, félags um samfélagslega ábyrgð fyrirtækja, verið skrifstofustjóri á skrifstofu borgarstjóra og sviðsstjóri þjónustu- og rekstrarsviðs Reykjavíkurborgar.

„Ég þakka kærlega fyrir það traust í minn garð sem mér er sýnt með ráðningunni. Mosfellsbær er gott og fjölskylduvænt samfélag í örum vexti og hér eru mörg tækifæri þegar til framtíðar er litið. Ég hlakka til að starfa með öflugum bæjarfulltrúum og góðu starfsfólki Mosfellsbæjar að þeim mikilvægu verkefnum sem eru framundan,“ er haft eftir Regínu í tilkynningunni.

Regína er með meistarapróf í hagfræði frá Háskólanum í Aberdeen, diplóma í opinberri stjórnsýslu og cand. mag. í félagsráðgjöf frá Háskólanum í Osló. Á ferli sínum hefur hún átt sæti í fjölmörgum stjórnum og starfshópum, nú síðast starfshópi sem skilaði tillögum um húsnæðismál til þjóðhagsráðs í maí síðastliðnum. 

Regína með stóran skammt af almennri skynsemi

Áætlað er að Regína hefji störf í byrjun september en ráðningarsamningurinn tekur formlega gildi þegar hann hefur verið staðfestur af bæjarráði fimmtudaginn 14. júlí.

 „Framundan eru stór verkefni, meðal annars í uppbyggingu og áframhaldandi fjölgun íbúa og stefnumótun til framtíðar. Þessi verkefni fela í sér fjölbreyttar áskoranir og því mikilvægt að við fáum til liðs við okkur einstakling með mikla og farsæla reynslu, stóran skammt af almennri skynsemi, þjónustulund og brennandi áhuga á málefnum sveitarfélagsins,“ er haft eftir Höllu Karen Kristjánsdóttur, formanni bæjarráðs.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert